Farþegum til og frá Íslandi fækkar

Á fyrstu sex mánuðum ársins fækkaði farþegum um tæp ellefu prósent. Það er fyrst og fremst rakið til tæplega 25% fækkunar Norður-Atlantshafsfarþegar, samkvæmt tilkynningu frá Icelandair.Farþegum til og frá Íslandi fækkaði um 0,8% fyrstu sex mánuði ársins, sætanýting fyrstu sex mánuðina versnaði um sex prósent.
Farþegum Flugfélags Íslands fjölgaði hins vegar um tæp fjögur prósent í júní mánuði og hefur fjölgað um fimm og hálft prósent það sem af er árinu. Sætanýting flugfélagsins á fyrstu sex mánuðunum hefur sömuleiðis batnað.