Farþegum Icelandair fjölgaði
Icelandair flutti 19 prósentum fleiri farþega á milli landa í apríl en í sama mánuði í fyrra, eða 136 þúsund manns. Þrátt fyrir aukið sætaframboð jókst sætanýting og varð rösklega 81 prósent. Er þetta í fyrsta skipti í sögu félagsins sem sætanýting fer yfir 80 prósent í apríl. Farþegum fjölgaði á öllum mörkuðum, en mest á Atlantshafsmarkaðnum, segir í frétt á Vísi.is