Þriðjudagur 9. október 2012 kl. 06:25
Farþegum í millilandaflugi fjölgaði
Farþegar í millilandaflugi Icelandair voru 18% fleiri í september en í sama mánuði í fyrra. Alls flutti félagið 198 þúsund farþega. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum. RÚV greinir frá þessu.
Fraktflutningar jukust um 14% á milli ára.