Farþegum í Leifsstöð fjölgaði um 13% í mars
Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæplega 13% í marsmánuði miðað við sama tíma í fyrra, úr rúmlega 87 þúsund farþegum árið 2003 í tæplega 99 þúsund farþega nú. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur rúmlega 9% milli ára. Farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgar þó hlutfallslega enn meira eða um 34%. Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgað um tæplega 21% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2003, eða úr tæplega 209 þúsund farþegum í rúmlega 252 þúsund farþega.
Myndin: Frá framkvæmdum við Flugstöð Leifs Eiríkssonar en nú er unnið að stækkun á komu- og brottfararsölum flugstöðvarinnar. VF-ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson.