Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Viðskipti

Farþegar WOW air í desember 207% fleiri en í fyrra
Mánudagur 9. janúar 2017 kl. 10:56

Farþegar WOW air í desember 207% fleiri en í fyrra

WOW air flutti 173.371 farþega til og frá landinu í desember síðastliðnum eða um 207 prósent fleiri farþega en í desember árið 2015. Sætanýting WOW air í desember var 86 prósent samanborið við 85 prósent á sama tíma í fyrra.
 
WOW air flutti í fyrra um 1.668.773 farþega en það er 130 prósenta fjölgun farþega frá árinu áður. Sætanýting WOW air árið 2016 var 88 prósent en sætanýting árið 2015 var 86 prósent.
 
Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að flugflotinn telji 17 þotur næsta sumar; þrjár Airbus A330, ellefu Airbus A321 og þrjár Airbus A320. Félagið mun bæta við sig þremur Airbus A321ceo, einni Airbus A321neo og einni Airbus A320neo í flotann á þessu ári sem eru með um 35 til 45 prósent lægri eldsneytiskostnað á sæti miðað við algengustu flugvélar sem er notaðar eru í flugi til og frá landinu í dag. Þessar fimm vélar eru allar nýjar, módel 2017 og koma beint frá verksmiðjum Airbus í Evrópu.
 
Árið 2016 fjölgaði ferðum Íslendinga erlendis um 86.200 ferðir miðað við 2015 samkæmt tölum frá Ferðamálastofu. Á sama tíma fjölgaði íslendingum sem flugu með WOW air um 53.000 sem er um 60 prósent hlutdeild af aukningunni milli ára. Svipaða sögu má segja með fjölda ferðamanna til Íslands á árinu. Fjöldi ferðamanna jókst um 506.000 og er hlutdeild WOW air í aukningunni 38 prósent.
 
„WOW air á mikla hlutdeild í þeirri aukningu á ferðamönnum sem koma til landsins og sama má segja um þá Íslendinga sem ferðast út fyrir landsteinana. Ég vil þakka kærlega fyrir það traust sem farþegar hafa sýnt okkur á liðnu ári. Það verður ánægjulegt að taka á móti þessum fimm nýju vélum á árinu en þær eru mun sparneytari en áður hefur þekkst og þar með getum við haldið áfram að lækka verðið enn frekar,“ segir Skúli Mogensen stofnandi og forstjóri WOW air.

Public deli
Public deli