Farþegar um Leifsstöð: Mesti fjöldi í janúarmánuði frá því mælingar hófust
Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæplega 21% í janúarmánuði miðað við sama tíma í fyrra, úr rúmlega 61 þúsund farþegum árið 2003 í um 74 þúsund farþega nú. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur rúmlega 19% milli ára. Farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgar þó hlutfallslega enn meira eða um 28%.
Farþegafjöldi í janúarmánuði hefur ekki verið svo mikill frá því mælingar hófust.
Farþegafjöldi í janúarmánuði hefur ekki verið svo mikill frá því mælingar hófust.