Reykjanesbær aðventugarðurinn
Reykjanesbær aðventugarðurinn

Viðskipti

Farþegafjöldi WOW air eykst um 139% í október
Þriðjudagur 8. nóvember 2016 kl. 09:29

Farþegafjöldi WOW air eykst um 139% í október

WOW air flutti 175.222 farþega til og frá landinu í október eða um 139% fleiri farþega en í október árið 2015. Þá var sætanýting WOW air 86% en var 88% í október á síðasta ári. Sætanýting helst svipuð þrátt fyrir 151% aukningu á sætaframboði milli ára.

Aukning á framboðnum sætakílómetrum hjá WOW air til og frá Norður Ameríku var 354% á milli ára en á sama tíma jókst ferðamannastraumur þaðan til Íslands um 127%. Samkvæmt tölum Ferðamálastofu er aukning ferðamanna frá N-Ameríku milli ára umtalsvert meiri en frá öðrum skilgreindum markaðssvæðum.

„Við erum afar ánægð með að sjá að markaðsaðgerðir okkar í N-Ameríku skila sér í jafn beinum hætti og eru að birtast í þessum tölum. Með auknu framboði á ódýrum sætum til Íslands og áfram til Evrópu eru sífellt fleiri að sjá sér fært að heimsækja okkur. Þetta er ekki bara frábært fyrir WOW air heldur fyrir íslenskan efnahag í heild sinni,“ segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air.

Sókn WOW air í Bandaríkjunum mun aukast næstu mánuði. Þann 23. nóvember mun félagið fljúga sitt fyrsta flug til New York en einnig voru nýlega tilkynntir tveir nýjir áfangastaðir í Bandaríkjunum, Miami og Pittsburgh, auk þess að flugum til og frá Los Angeles og San Francisco verður fjölgað frá og með næsta vori.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
VF jól 25
VF jól 25