HSS
HSS

Viðskipti

Fallegt handverk hjá Ingibjörgu í Gallerý Ársól
Loftur Sigvaldason og Ingibjörg Sólmundardóttir í Gallerý Ársól.
Þriðjudagur 24. desember 2013 kl. 08:02

Fallegt handverk hjá Ingibjörgu í Gallerý Ársól

Ingibjörg Sólmundardóttir á 35 ára verslunarafmæli í Garðinum á þessu ári. Það var síðla árs 1978 sem hún opnaði sjoppu í litlum skúr við bensínafgreiðslu á Sunnubrautinni í Garði. Í dag er Ingibjörg hins vegar hætt sjoppurekstri en þess í stað komin á kaf í handverk. Hún rekur vinnustofu og gallerý á heimili sínu við Kothúsaveg 12 í Garði.

Gallerý Ársól í Kothúsum þekkja Garðmenn vel. Íbúðarhúsið er elsta hús í Garðinum sem búið er í og er yfir 100 ára gamalt. Gallerýið er hins vegar í nýrri viðbyggingu við húsið. Ingibjörg er öllum stundum í handverkinu og er m.a. að framleiða veski úr leiðri og skinnum. Þá smíðar hún úr slifri og mótar gler, svo eitthvað sé nefnt. Hún fer svo í hverri viku á handverksmarkaði og einnig tekur hún á móti fólki í gallerýið við Kothúsaveg 12. Það er opið á meðan hún er heima. Ef ljós er í húsinu er fólk hvatt til að hringja dyrabjöllunni. Þeir sem koma lengra að geta einnig hringt til Ingibjargar í síma 896 7935 og bókað heimsókn.

Ingibjörg segir vinsælt hjá hópum að kíkja við í Kothúsum til að skoða og versla í gallerýinu. Hún segir einnig vinsælt þegar hún býður hópum upp á kaffisopa í íbúðarhúsinu sem er hokið af sögu, enda elsta íbúðarhús í Garði sem búið er í.                                                            

(Úr blaðinu SUÐUR MEÐ SJÓ sem fylgdi Víkurfréttum 19. desember sl.)



Bílakjarninn
Bílakjarninn