Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám

Viðskipti

Færri einkaþotur vegna bensínhækkunar
Þriðjudagur 1. júlí 2008 kl. 11:42

Færri einkaþotur vegna bensínhækkunar

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Hjá Suðurflugi á Keflavíkurflugvelli verða menn varir við að hækkun eldsneytisverðs hefur einnig áhrif á einkaflug eins og farþegaflug. Einkaþotur eru ekki eins tíðir gestir á Keflavíkurflugvelli í dag eins og á sama tíma fyrir ári.

Davíð Jóhannsson, framkvæmdastjóri Suðurflugs, sem þjónustar meirihluta þess einkaflugs sem fer um Keflavíkurflugvöll, sagðist þó vera ánægður með hlut Suðurflugs, þrátt fyrir samdráttinn í fluginu.

Suðurflug hefur nýverið flutt starfsaðstöðu sína um set inni á flugvallarsvæðinu. Suðurflug er nú með aðsetur í Knútsstöð, sem var eldsneytisafgreiðsla ESSO á Keflavíkurflugvelli í áratugi. Þar þjónustar Suðurflug nú einkaflugvélar og einnig allt herflug sem fer um Keflavíkurflugvöll. Flutningur aðstöðunnar þangað er til mikilla bóta fyrir Suðurflug, þar sem rými til flugafgreiðslu er allt miklu betra en við eldri aðstöðuna í nágrenni Leifsstöðvar.

Myndir: Frá Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi. Ljósmyndir: Hilmar Bragi

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar