Bygg
Bygg

Viðskipti

Föstudagur 16. nóvember 2001 kl. 22:59

Eyþór kaupir stærri togara í Færeyjum

Eyþór Jónsson, útgerðarmaður í Færeyjum, seldi nýlega togarann Föstuvarða sem hann hefur gert út í félagi við Bjarta Mohr. Í staðinn keyptu þeir stærri togara sem heitir Vesturvarði og verður hann gerður út á hefðbundnar bolfiskveiðar.Eyþór Jónsson var lengi útgerðarstjóri togarans Hauks GK frá Sandgerði. Hann býr í Sandgerði en er með annan fótinn í Færeyjum og keypti sig inn í útgerð togarans Föstuvarða sem stundað hefur svokallaðar partrollveiðar með öðrum togara af sömu stærð fyrir tveimur árum. Veiðarnar hafa gengið vel en Eyþór segir í samtali við InterSeafood.com að mat hans og meðeigandans hafi verið það að nú væri rétti tíminn til þess að fjárfesta í stærri togara.
Allur afli Vesturvarða, sem er 488 brúttótonn að stærð, verður seldur á fiskmarkaði og segir Eyþór verðið hafa verið ágætt að undanförnu. Verð á ufsa hefur þó ekki verið neitt sérstakt eða um 65 til 75 ísl. kr/kg en hins vegar hefur þorskverðið verðið mjög gott eða 305 til 360 ísl. kr/kg.
Sjá nánar á InterSeafood.com.
Bílakjarninn
Bílakjarninn