Exorka fær þrjú ný virkjanaleyfi í Þýskalandi

Í tengslum við þessi leyfi getur Exorka byggt orkuver í Bæjaralandi sem samtals munu framleiða 15-25 MW af raforku á ári. Heildarfjárfesting í þessum virkjunum gæti numið allt að 20 milljörðum króna.
Fyrirtækið Exorka ehf. var stofnað árið 2001 af Orkuveitu Húsavíkur og þremur verkfræðistofum; VGK í Reykjavík, Útrás á Akureyri og Tækniþingi á Húsavík. Markmiðið var að hanna, framleiða og selja orkuver sem byggja á Kalina-tækninni.
Við stofnun Geysis Green Energy í upphafi þessa árs varð Exorka dótturfélag Geysis. Með þessu nýja verkefni stígur Geysir Green Energy enn eitt skrefið til útrásar en félagið vinnur nú að umtalsverðum fjárfestingum í verkefnum á sviði endurnýjanlegra orkugjafa víða um heim.