Reykjanesbær 3-6 sept
Reykjanesbær 3-6 sept

Viðskipti

Enn fjölgar farþegum sem fara um Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Þriðjudagur 7. október 2003 kl. 09:04

Enn fjölgar farþegum sem fara um Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæplega 15% í septembermánuði miðað við sama tíma í fyrra, úr tæplega 106 þúsund farþegum árið 2002 í tæplega 122 þúsund farþega nú. Mest vegur fjölgun farþega til og frá Íslandi sem er rúmlega 20% milli ára. Á sama tíma hefur farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fækkað um rúm 5%.  
 
Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar því fjölgaði um tæplega 10% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2002, eða úr tæplega 987 þúsund farþegum í rúmlega 1.084 þúsund farþega.
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25