Einn erfiðasti dagur bakarans
Bolludagurinn er sennilega einn erfiðasti dagur bakarans en meirihluti bæjarbúa fær sér alla vega eina bollu í tilefni dagsins. Bakararnir mæta snemma til vinnu til að undirbúa daginn en Sigurjón bakari í Keflavík mætti klukkan tólf á miðnætti í gærkvöldi til að byrja baksturinn. Þá var fyrsta bollan bökuð og sú seinasta var ekki bökuð fyrr en rétt eftir hádegi í dag, heldur betur álag á bakarofnunum.
Bakaðar voru um 6.000 bollur í Sigurjónsbakaríi og afgreiðslustúlkurnar sögðu að það hefðu selst yfir fimm þúsund stykki. Þær sögðu þetta mjög góðan bolludag. Þó færri hefðu komið í ár þá hefði selst svipað magn og í fyrra.
VF-Mynd: Siggi Jóns