Bygg
Bygg

Viðskipti

Einar Hannesson útibússtjóri Landsbankans
Fimmtudagur 31. mars 2011 kl. 14:36

Einar Hannesson útibússtjóri Landsbankans

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Einar Hannesson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri Spkef hefur verið ráðinn útibússtjóri Landsbankans í Reykjanesbæ.


Umsækjendur um stöðuna voru 15, þar af 5 starfsmenn Landsbankans og 10 utan bankans. Þrjár konur sóttu um starfið en 12 karlar.


Einar starfaði nú síðast sem sparisjóðsstjóri SpKef, en hefur í kjölfar samrunans átt sæti í stýrihóp um sameiningu Landsbankans og SpKef. Áður starfaði Einar sem forstöðumaður flugafgreiðslusviðs Icelandair Ground Service og staðgengill framkvæmdastjóra. Hann hefur lokið B.Sc. gráðu í iðnaðartæknifræði auk MBA náms frá Háskóla Íslands.


Í kjölfar samruna Landsbankans og SpKef er útibú Landsbankans í Reykjanesbæ eitt það fjölmennasta hjá Landsbankanum, en undir útibúið heyra afgreiðslur í Vogum, Sandgerði, Njarðvík, Garði og Leifsstöð. Alls starfa um 60 manns í útibúi og afgreiðslum.


Einar mun taka við nýrri stöðu nú þegar.


Einar er kvæntur Magndísi Andrésdóttur, hjúkrunarfræðingi og eiga þau þrjú börn.