Eftirlaunasjóður Reykjanesbæjar vex um 7,3%
Staða Eftirlaunasjóðs Reykjanesbæjar er góð en hrein eign sjóðsins hækkaði um 7,3% á síðasta ári. Þetta kom fram á aðalfundi sjóðsins sam haldinn var í vikunni.
Jákvæð raunávöxtun 2007 var 2,65% sem teljst mjög gott miðað við ástandið á fjármálamarkaði síðasta hluta ársins.
Í árslok 2007 var gert samkomulag á milli Eftirlaunasjóðs Reykjanesbæjar og Sparisjóðsins í Keflavík um að sparisjóðurinn myndi greiða upp áfallnar skuldbindingar sínar í sjóðnum miðað við 31. desember 2006. Áfallin lífeyrisskuldbinding sparisjóðsins umfram reiknaðan hlut í eignum hans nam alls 1.282.8 milljónum króna og var hún greidd að fullu í janúar 2008. Hækkun á hreinni eign sjóðsins nam 151,9 milljónum króna eða 7,3%.
Stjórn Eftirlaunasjóðs Reykjanesbæjar skipa: Árni Sigfússon bæjarstjóri, Ellert Eiríksson og Elsa Lilja Eyjólfsdóttir. Framkvæmdastjóri er Greta J. Sigurðardóttir.