Bygg
Bygg

Viðskipti

Efla stækkar í Reykjanesbæ og sest að á Ásbrú
Laugardagur 1. október 2011 kl. 12:41

Efla stækkar í Reykjanesbæ og sest að á Ásbrú


Efla verkfræðistofa hefur flutt sig um set í Reykjanesbæ. Efla flutti útibúið sitt upp í Eldvörp á Ásbrú eftir að hafa verið í tæp fjögur ár á Hafnargötunni. Í Eldvörpum er góð aðstaða fyrir starfsmenn, fundarherbergi og fyrirlestrarsalur.

Arnar Ingólfsson útibússtjóri hjá Eflu er bjartsýnn á framtíðina, þrátt fyrir að undanfarin ár hafi verið rýr hér á Suðurnesjum. Hjá Eflu vinna núna þrír starfsmenn sem búa í Reykjanesbæ. Auk þess að hafa aðstöðu í fyrirtækjahótelinu á Ásbrú, þá starfa þeir einnig í höfuðstöðvunum við Höfðabakka í Reykjavík.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Efla hefur komið að nokkrum verkefnum sem hafa verið í undirbúningi hér á svæðinu. Efla er vel í stakk búin að takast á við verkefni á svæðinu sem snúa að verkfræðiráðgjöf, t.d. raflagnahönnun í iðnaði eða byggingum, umhverfismál, orkumál, samgöngumál, byggingamál, verkefnastjórnun o.fl.

„Við höfum verið með starfsstöð í Reykjanesbæ síðan 2007. Við vorum með aðsetur við Hafnargötuna en leist betur á aðstöðuna hér í Eldvörpum. Hér er gríðarlega góð aðstaða fyrir fyrirtæki eins og okkar. Ef framkvæmdir fara af stað á Suðurnesjum þá eru hér góðir möguleikar fyrir okkur til að vaxa og stækka. Hér eru góð fundarherbergi og fyrirlestrarsalur. Hér er í rauninni allt til alls fyrir okkur“.

Aðspurður um ástæður þess að Efla hafi sett sig niður í Reykjanesbæ, segir Arnar ástæðuna vera tvíþætta. Annars vegar er það búseta starfsmanna Eflu á Suðurnesjum og ekki síður það að vera til staðar og nær hugsanlegum verkefnum á Suðurnesjum.

Helstu verkefni starfsmanna Eflu á Suðurnesjum er raflagnahönnun og eftirlit. Þá er Efla í verkefnum tengdum jarðvarma, háspennu og orkufrekum iðnaði, s.s. álverum og slíkum iðnaði.

Arnar sagði að útstöðin í Reykjanesbæ verði í raun mönnuð eftir þeim verkefnum sem falla til á Suðurnesjum og því sé það mikill kostur að vera með starfsemina á fyrirtækjahótelinu í Eldvörpum. Hann sagði Eflu hafa verið með puttana í ýmsum verkefnum á Suðurnesjum en eins og staðan sé í dag er ekkert í hendi.

Það vakti athygli blaðamanns að Arnar var bara einn á skrifstofunni í Eldvörpum nú fyrir helgi og það skýrist af því að hinir tveir samstarfsmenn hans eru staddir í verkefnum í Noregi en Arnar sagði að það hafi fleytt Eflu í gegnum kreppuna að hafa næg verkefni utan landssteinanna. Þannig hafa starfsmenn Eflu verið við störf tengd álverum. T.a.m. hafa allt að 10 starfsmenn verið við störf í Dubai.

Einkennisorð Eflu eru einmitt: Efla „allt mögulegt“. Nánari upplýsingar um Eflu er hægt að finna á heimasíðunni http://www.efla.is