Viðskipti

Delta þremur mánuðum fyrr á ferðinni til New York
Fimmtudagur 11. febrúar 2016 kl. 12:08

Delta þremur mánuðum fyrr á ferðinni til New York

Fyrsta flugferð ársins með Delta Air Lines milli Íslands og New York verður á morgun, 12. febrúar. Bandaríska flugfélagið hefur bætt þremur mánuðum framan við hefðbundið ferðatímabil, vegna mikillar eftirspurnar bandarískra ferðamanna svo og Íslendinga á leið vestur um haf.

Flogið verður til New York samfleytt í sjö mánuði á þessu ári. Þann 27. maí bætist Minnapolis við sem nýr áfangastaður Delta og verður flogið þangað daglega til loka september. Frá og með 29. maí verður aukalegu flugi bætt við á sunnudögum til New York. Alls verða 15 vikulegar flugferðir í boði til Bandaríkjanna með Delta yfir sumartímann. Þegar Delta hóf starfsemi hér árið 2011 voru 5 ferðir í boði vikulega.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Ísland verður stöðugt vinsælli áfangastaður ferðamanna frá Bandaríkjunum og við mætum þeirri eftirspurn með lengingu ferðatímabilsins og Minneapolis sem nýjum áfangastað. Framboð flugsæta eykst við þetta um 101% frá því í fyrra,“ segir Nat Pieper, forstjóri Delta í Evrópu. „Það er sérlega ánægjulegt að hefja sjötta starfsár okkar á Íslandi með stóraukinni þjónustu, ekki síst með nýjum áfangastað í Bandaríkjunum,“ segir í tilkynningu frá Delta.

Áætlun Delta milli Reykjavíkur (KEF) og New York (JFK) 2016:

Líkt og fyrri ár fljúga Boeing 757-200 þotur Delta milli Íslands og New York. Auk lúxusfarrýmis býðst farþegum aukin þægindi í Delta Comfort+ með rýmra bil á milli sæta og er hægt að halla sætisbökum þar 50% meira aftur en á almennu farrými.
 
Máltíðir og allir drykkir eru innifalin í fargjaldi á öllum farrýmum í millilandaflugi Delta og minnst ein 23 kg ferðataska ásamt handfarangri. Afþreyingarkerfi stendur öllum farþegum til boða á flugleiðinni svo og wi-fi tenging við internetið.
 
Hægt er að bóka beint flug til New York með Delta á vefsíðu félagsins  www.delta.com og hjá ferðaskrifstofum.