Delta flýgur frá Keflavík
Delta Air Lines, ásamt samstarfsaðilum sínum í Ameríku, Air France, KLM og Alitalia munu bjóða farþegum sínum tækifæri á tengiflugi á fleiri en 35 hentuga áfangastaði í áframhaldi af New York-JFK um öll Bandaríkin, Kanada, Rómönsku Ameríku og Karabíska hafið þegar fyrirtækið hefur beint flug milli flugstöðvarinnar í Keflavík og John F. Kennedy flugvallar hinn 3. júní 2011.
Delta farþegar frá Íslandi geta haldið áfram í auðveld tengiflug á lykiláfangastaði innan Bandaríkjanna, svo sem Los Angeles, Miami, San Fransiskó, Atlanta, Orlando, Detroit, Las Vegas og Fort Lauderdale. Þjónusta Delta verður starfrækt fimm daga vikunnar og fer starfsemin fram í 170-sæta Boeing 757-200 vélum, með 15 sætum á BusinessElite viðskiptafarrými og 155 sætum á almennu farrými.
„Eftirspurn eftir alþjóðaferðum styrkir stoðir undir efnahagsbata á heimsvísu,“ sagði Glen Hauenstein, varaforstjóri Delta fyrir áætlanagerð, rekstur og markaðssetningu í tilkynningu. „Þar sem sölutekjur jukust um meira en 10% á næstum hverjum einasta alþjóðlega viðskiptamarkaði okkar á síðasta ári, endurspeglar ferðaáætlunin fyrir 2011 yfirvegaða svörun við óskum farþega á viðskiptasviðinu fyrir auknu aðgengi að mikilvægustu viðskipta-höfuðborgum veraldar“.
Þessi nýja þjónusta milli Keflavíkur og New York er hluti af áframhaldandi fjárfestingu Delta í New York-markaðnum, og hún bætist við fleiri en 40 nýja áfangastaði sem kynntir hafa verið á síðastliðnum fjórum árum, en þar eru taldir með La Guardia og JFK. Keflavík verður 38. alþjóðlegi áfangastaðurinn sem Delta flýgur á frá JFK, og styrkir það stöðu félagsins sem leiðandi flutningsaðili frá JFK.
Hægt er að bóka Delta flug hjá ferðaskrifstofum, eða á netinu á www.delta.com eða www.klm.com.
Með næstum 250 flug daglega yfir Atlandshafið og flota af 144 flugvélum tryggir samstarfsverkefnið milli Air France-KLM, Alitalia og Delta Air Lines viðskiptavinum ávinninginn af viðamiklu leiðakerfi þar sem boðið er upp á tíðari flug, samkeppnishæf fargjöld og samræmda þjónustu fyrir öll flug yfir Atlantshafið. Samstarfið byggist á þjónustu um sjö meginstaði: Amsterdam, Atlanta, Detroit, Minneapolis, New York-JFK, Paris-CDG og Rome Fiumicino, ásamt Cincinnati, Lyon, Mílanó, Memphis og Salt Lake City. Samstarfið veitir viðskiptavinum aðgengi að 300 áfangastöðum handan 26 leiða frá Norður-Ameríku, og á 200 áfangastaði handan 33 leiða frá Evrópu um alla Evrópu, Asíu og Rómönsku Ameríku. Samstarfið rúmar 27% af flugferðum yfir Atlandshafið og sölutekjur árlega eru 10 milljarðar dala. Samkvæmt samstarfssamningi félaganna reka þau flugleiðirnar yfir Atlantshafið í sameiningu, og deila þar með sölutekjum og kostnaði.
Mynd: Flugvél frá Delta á Keflavíkurflugvelli í febrúar 2006. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson