Bygg
Bygg

Viðskipti

daCoda í auknum vexti
Fimmtudagur 22. júní 2006 kl. 17:01

daCoda í auknum vexti

Hugbúnaðarfyrirtækið daCoda í Reykjanesbæ var stofnað árið 2002 og hefur farið ört vaxandi með hverju ári.  Dacoda hefur skapað sér nokkra sérstöðu á markaði með vefsumsjónarkerfinu ConMan, sem fyrirtækið hefur hannað og þróað síðustu ár. Með því kerfi hafa sífellt fleiri bæst í viðskiptamannahóp Dacoda, enda þykir ConMan - kerfið mjög aðgengilegt og auðvelt í notkun.

Júlíus Guðmundsson, framkvæmdastjóri daCoda, kom til starfa hjá fyrirtækinu fljótlega eftir stofnun þess. Hann segir starfsemina hafa farið rólega af stað í fyrstu en aukningin hafi verið jöfn og þétt á hverju ári.  „Vaxtarbroddur fyrirtækisins hefur aðallega falist í vefumsjónarkerfinu en notendum þess fjölgar stöðugt, enda kemur ConMan vel út úr öllum samanburði við önnur kerfi. Sífellt fleiri horfa til þeirra lausna sem við höfum upp á að bjóða og í viðskiptamannahóp okkar hafa undanfarið bæst við fyrirtæki eins og Opin kerfi og ÓB-bensín, einnig hönnuðum við miðasölukerfi fyrir OgVodafone sem notað var fyrir miðasöluna á Bubba-tónleikana á dögunum og reyndist mjög vel“, sagði Júlíus í samtali við Víkurfréttir.

Á meðal annarra viðskiptavina daCoda má nefna sveitarfélögin Garð og Sandgerði, Bláa lónið, Fríhöfnina, Samkaup og Víkurfréttir, sem er í hópi mest sóttu vefa landsins.  „Hlutirnir gerast hratt í þessari grein en líftími á vef er kannski 2-3 ár. Reynslan hefur sýnt að eftir þann tíma er algengt að viðskiptavinir vilji endurnýja vefi sína því þróunin er svo hröð á ekki lengri tíma og allt aðrar lausnir komnar til sögunnar.

ConMan hefur þess vegna þróast mikið síðan við settum hann fyrst á markað og í dag hefur kerfið orðið nokkuð sterka markaðhlutdeild. Hér á landi eru tæplega 12 þúsund skráð lén þannig að sóknarfærin eru mörg“, sagði Júlíus.

daCoda býður sínum viðskiptavinum sérsniðar hugbúnarlausnir því staðlaðar lausnir henta ekki öllum. Miðasölukerfið er einmitt gott dæmi um þetta en viðskipti og þjónusta virðist í auknum mæli vera að færast yfir í sjálfsafgreiðsluform á netinu. Júlíus segir að mörg sóknarfæri muni felast í þessu á næstu árum, því  hugbúnaðarlausnir eins og þessar séu oftar en ekki sérsniðnar.

„Það er margt að gerast og jarðvegurinn góður fyrir vöxt fyrirtækisins. Okkur vantar bara fleiri starfsmenn til að mæta þessu. Fólk með sérþekkingu á þessu sviði virðist ekki liggja á lausu“, sagði Júlíus. 

Mynd: Júlíus Guðmundsson og Borgar Erlendsson hjá daCoda.

Mynd og texti: Ellert Grétarsson

Bílakjarninn
Bílakjarninn