Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Viðskipti

Byrjaði allt við eldhúsborðið
Hilmir Ingi Jónsson og Svanhildur Björk Hermannsdóttir, stofnendur ReMake Electric.
Fimmtudagur 9. maí 2013 kl. 08:18

Byrjaði allt við eldhúsborðið

- Njarðvíkingurinn Hilmir Ingi Jónsson hefur náð frábærum árangri með fyrirtæki sitt ReMake Electric

Njarðvíkingurinn Hilmir Ingi Jónsson starfaði sem rafvirki fyrir nokkrum árum þegar hann fékk hugmynd sem hefur slegið í gegn. Í framhaldinu þróaði Hilmir búnað sem aflar upplýsinga um orkunotkun og getur stuðlað að mikilli hagræðingu og komið í veg fyrir orkusóun. Hugmyndin hefur nú verið seld áfram víða um heim og í síðustu viku gerði fyrirtæki hans, ReMake Electric, stóran samning við fyrirtæki í Bretlandi um að koma búnaði fyrirtækisins í sölu á breskan markað. Fyrirtækið fór af stað við eldhúsborðið en er í dag, nokkrum árum síðar, starfrækt í Kópavogi með 25 starfsmönnum.


Hilmir Ingi, sem er rafvirki að mennt, uppgötvaði í starfi sínu að skortur var var á upplýsingum um rafmagn til bilanaleitar og kviknaði hugmynd í framhaldinu um að þróa búnað sem aflaði upplýsinga um orkunotkun. Hann fór í það ferli að þróa þessa hugmynd áfram, fékk styrki frá Tækniþróunarsjóði og hefur árangurinn verið frábær. Hilmir Ingi vann Start09 árið 2009 og Gullegg Innovit árið 2009 og í kjölfar þess komu fjárfestar að fyrirtækinu. Í lok síðasta árs var ReMake Electric valið sem besta fjárfestingartækifæri í Evrópu og í orkugeiranum af breska greiningarfyrirtækinu Frost&Sullivan en fyrirtækið hefur einnig unnið til nokkura alþjóðlegra viðurkenninga. Nú á dögunum var tilkynnt að ReMake Electric hefði gert samning við breska fyrirtækið InTouch IS um markaðssetninu á eTactica kerfinu í Bretlandi sem ReMake Electric hefur þróað.

„Ég fékk þessa hugmynd árið 2005 þegar ég starfaði sem rafvirki hjá Sigga Ingvars í Garðinum og í kjölfarið ákváðum við kærastan mín, Svanhildur Björk, að stofna fyrirtæki í kringum þessa hugmynd,“ segir Hilmir Ingi. „Þetta hefur gerst ótrúlega hratt og við höfum fengið með okkur frábæran mannskap. Við gerðum stóran samning við breskt fyrirtæki í síðustu viku sem hefur mjög góða markaðsstöðu þar í landi fyrir orkusparandi og orkustjórnunar lausnir. Þetta er mjög alveg dúndur samningur fyrir okkur. Bretland er stór markaður og við væntum þess að ná mögnuðum árangri með InTouch.“

Hjálpar fyrirtækjum að skilja og spara raforkunotkun

ReMake Electric hefur þróað  vél- og hugbúnað sem bætir upplýsingargildi við hefðbundinn raföryggisbúnað og býður einnig upp á upplýsingagjöf til eftirlits og vöktunar á raforku í byggingum. Með þessum búnaði geta fyrirtæki fengið til sín upplýsingar með tilkynningum og sparað allt að 40% raforku en sparnaðurinn er að meðaltali 20%. Einnig geta fyrirtæki forðast skemmdir sem verða vegna of mikils álags og lengt líftíma tækja með betri álagsstjórnun.

„Okkar áhersla er að safna upplýsingum um rafmagn og gera þessi gögn skiljanleg fyrir notandann svo hann geti tekið upplýstar ákvarðanir. Þetta snýst um að sundurliða rafmangsnotkun til að átta sig á því hvar má ná fram hagræðingu og hafa vöktun á rafmagnsálagi til að ná fram  betri álagsdreifingu. Þannig er hægt að fyrirbyggja orkusóun og einnig skemmdir á rafmagnstækjum og leiðslum. Okkar búnaður bætist bara við núverandi rafmagnsöryggi og því er lítill tilkostnaður við að bæta okkar búnaði við,“ bætir Hilmir við.

„Fyrirtækið stækkar nánast með hverri vikunni sem líður og það mikill áhugi erlendis fyrir okkar búnaði. Við erum allt frá Íslandi til Singapúr eins og staðan er í dag og það eru virkilega spennandi tímar framundan hjá fyrirtækinu.“

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024