Byr og Íslandsbanki í eina sæng í Reykjanesbæ á mánudaginn
Byr og Íslandsbanki munu sameinast undir merkjum Íslandsbanka í Reykjanesbæ þann 16. janúar næstkomandi Þær Elsa Ína Skúladóttir, Margrét Ingibergsdóttir og Jóna Björg Antonsdóttir, sem verið hafa þjónustufulltrúar hjá Byr flytja sig þá yfir í útibú Íslandsbanka að Hafnargötu 91 en Ásdís Ýr Jakobsdóttir sem verið hefur útibússtjóri Byrs mun hverfa til annarra starfa innan Íslandsbanka.
Sighvatur Ingi Gunnarsson, útibússtjóri Íslandsbanka í Reykjanesbæ skrifar grein í Víkurfréttir í dag þar sem hann greinir frá breytingunum. Í greininni segir hann að samruni bankanna eigi sér nokkurn aðdraganda, en skrifað var undir kaupsamning milli Íslandsbanka, Byrs og íslenska ríkisins í júlí síðastliðnum. Síðan hafa allar viðkomandi eftirlitsstofnanir samþykkt samrunann sem og Alþingi Íslendinga, sem samþykkti sölu á hlut ríkisins þann 22. nóvember síðastliðinn.
Aðalmarkmið með sameiningunni er að mynda öflugt fjármálafyrirtæki þar sem áhersla er lögð á framúrskarandi og persónulega þjónustu til viðskiptavina okkar. Með sameiningu Byrs og Íslandsbanka næst auk þess fram mikilvæg hagræðing á íslenskum fjármálamarkaði.
Liðsauki í reynslumiklum starfsmönnum Byrs
„Íslandsbanki á sér langa sögu á Suðurnesjum, en bankinn og forverar hans, Útvegsbankinn og Verslunarbankinn, hafa starfað í Reykjanesbæ frá árinu 1963. Byr á sér öllu styttri sögu á svæðinu, en útibú bankans var stofnað í apríl 2011. Starfsmenn Byrs í Reykjanesbæ eiga sér þó mun lengri starfsreynslu í bankaþjónustu í Reykjanesbæ en þeir unnu allir lengi vel hjá Sparisjóði Keflavíkur og eru hver og einn með um 30 ára reynslu í fjármálageiranum. Því er mjög ánægjulegt að þrír þeirra munu nú flytjast yfir í útibú Íslandsbanka og þjóna viðskiptavinum sameinaðs banka. Þetta eru þær Elsa Ína Skúladóttir, Margrét Ingibergsdóttir og Jóna Björg Antonsdóttir, en Ásdís Ýr Jakobsdóttir sem verið hefur útibússtjóri Byrs mun hverfa til annarra starfa innan Íslandsbanka.
Fjölbreytt og góð þjónusta sameinaðs banka
Hjá sameinuðum banka færð þú fjölbreytta fjármálaþjónustu. Við leggjum áherslu á að nýta styrk beggja banka og sameinast um að gera góða þjónustu enn betri. Við bjóðum fjölbreytta möguleika í sparnaði og ávöxtun fjármuna, bjóðum bæði óverðtryggð og verðtryggð húsnæðislán, Netbankinn okkar er beintengdur við Meniga heimilisbókhaldið og svo mætti lengi telja. Fyrirtækjadeild útibúsins hefur auk þess mikla þekkingu og reynslu í því að þjóna fyrirtækjum. Í útibúi okkar munu eftir sameininguna starfa 16 starfsmenn, tilbúnir til að veita þér góða og persónulega þjónustu.
Opnunarhátíð þann 16. janúar
Mánudaginn 16. janúar verður útibú Íslandsbanka opið til kl. 18:00 í tilefni af sameiningunni þar sem boðið verður upp á kaffi og kökur og Goggi verður á staðnum eftir kl. 15:00 með glaðning fyrir börnin. Við hvetjum þig til að koma í heimsókn til okkar að Hafnargötu 91, það er ávallt heitt á könnunni og við tökum vel á móti þér“, segir Sighvatur Ingi Gunnarsson, útibússtjóri Íslandsbanka í Reykjanesbæ í greininni í Víkurfréttum í dag.