HSS
HSS

Viðskipti

Fimmtudagur 4. október 2001 kl. 09:37

BYKO heldur upp á afmælið

Í dag hefst þriggja daga afmælisveisla hjá BYKO í Keflavík í tilefni þess að verslunin hefur verið starfandi í fimm ár á Suðurnesjum. Ýmis tilboð verða í gangi þessa daga og viðskiptavinir fá kaffi og kleinur sér til hressingar.
Ellert Arnbjörnsson, aðstoðarverslunarstjóri BYKO í Keflavík hefur starfað þar sl. fjögur ár en hann segir að verslunin hafi gengið mjög vel frá því að hún opnaði fyrir fimm árum síðan. „Við erum ánægð með okkar hlut á þessum markaði og höfum ekki orðið vör samdrátt“, segir Ellert og þakkar viðskiptavinum einstaklega góðar móttökur.
Gagngerar breytingar voru gerðar á versluninni á síðasta ári og að sögn Ellerts hafa þær breytingar skilað sér. „Uppsetning búðarinnar gerir hana aðgengilegri. Við leggjum líka mikla áherslu á góða þjónustu en það er gaman að segja frá því að við höfum mikið til haldið sama starfsfólkinu frá upphafi. Vöruúrvalið er alltaf að aukast, með áherslu á byggingavörur og vörur til heimilisins. Ef vörunar eru ekki til á lager hjá okkur þá eru þær komnar til viðskiptavinarins samdægurs eða daginn eftir“, segir Ellert.
Í BYKO er hægt að gera meira en að versla en þar má fá ýmsa þjónustu s.s. niðursögun á efni, borðplötum, skápaefni o.fl. og Ellert leggur einnig áherslu á að þar sé mjög góð varahlutaþjónusta fyrir blöndunartæki. Viðskiptavinir geta einnig leigt verkfæri á staðnum. Þeir sem vilja kynna sér sértilboð og þjónustu BYKO geta kíkt inn á vefslóðina www.byko.is
Bílakjarninn
Bílakjarninn