Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

Brimborg opnar í sumar öflugustu hraðhleðslustöð landsins í Reykjanesbæ
Svona mun hraðhleðslustöðin líta út. Tölvuteiknuð mynd
Sunnudagur 23. júlí 2023 kl. 09:52

Brimborg opnar í sumar öflugustu hraðhleðslustöð landsins í Reykjanesbæ

Brimborg hefur hafið framkvæmdir við uppsetningu á öflugustu hraðhleðslustöð landsins þar sem rafmagnsvinnuvél sér um jarðvinnu og aðföng eru flutt á verkstað á rafmagnssendibíl. Stöðinni hefur verið valinn staður á Flugvöllum í Reykjanesbæ stutt frá flugstöðinni.

Um er að ræða stöð af Kempower-gerð með hleðsluafköst allt að 600 kW og getur stöðin annað hleðslu átta ökutækja í einu af öllum stærðum og gerðum. Brimborg hefur samið við HS veitur um orku fyrir stöðina og hefur stór heimtaug þegar verið virkjuð. Stöðin verður opin öllum rafbílanotendum með e1 hleðsluappinu og opnar í sumar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Stöðin er svokölluð fjöltengjastöð með átta öflugum CCS-tengjum. Sex tengjanna geta afkastað 120 kWh á klukkustund fyrir venjulega rafbíla og til viðbótar eru tvö vökvakæld tengi sem geta annað allt að 375 kWh á klukkustund fyrir rafmagnsvörubíla, rafknúna hópferðabíla og rafmagnsfólksbíla sem vinna á hærri rafspennu.

Auðvelt aðgengi fyrir löng ökutæki og hreyfihamlaða

Stöðin er hönnuð á svipaðan hátt og bensínstöð með gegnumakstri og því er mjög einfalt aðgengi að og frá öllum tengjum fyrir fólks-, sendi-, vöru- eða hópferðabíla og einnig fyrir bíla með ferðavagna og kerrur. Hönnun stöðvarinnar hefur miðað að því að einfalda aðgengi að og frá og tryggja gott aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Upphituð plön verða við stöðina, góð lýsing og öryggismyndavélar auk þess sem hluti af raforkunni verður fengin með sólarorkuveri sem reist verður á þaki þjónustuhúss bílaleigu Brimborgar þegar það rís sem mun draga úr álagstoppum á dreifikerfið.

Lykilhlekkur til útleigu rafbíla til ferðamanna

Stöðin verður mikilvægur hlekkur í rafvæðingu bílaleiguflota Brimborgar hjá bílaleigunum Dollar Rent A Car og Thrifty Car Rental sem er með aðstöðu til útleigu bíla á Flugvöllum. Bílaleigur Brimborgar hafa stækkað rafbílaflota sinn umtalsvert undanfarna mánuði meðal annars til útleigu rafbíla til erlendra ferðamanna.

Nú þegar aka yfir tuttugu þúsund rafbílar um vegi landsins og stórir rafmagnsvörubílar hafa þegar hafið akstur en þetta er þó aðeins brot af þeim u.þ.b. 280 þúsund bílum sem eru á Íslandi sem þarf að skipta yfir í rafmagn.