Breytt stoðsvið Isavia
Isavia hefur verið í örum vexti frá stofnun fyrirtækisins árið 2010. Skipulagsbreytingar hafa verið gerðar á stoðsviðum félagsins til þess að bregðast við auknum umsvifum. Elín Árnadóttir hefur verið ráðin aðstoðarforstjóri með ábyrgð á þróunar- og stjórnunarsviði félagsins, Sveinbjörn Indriðason tekur við sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs og Sigurður Ólafsson er framkvæmdastjóri Mannauðs og árangurssviðs.
Isavia er næststærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins með um 800 starfsmenn sem eru lykilinn að velgengni félagsins. Áhersla er lögð á þróun og vöxt fyrirtækisins til þess að mæta þörfum sívaxandi ferðamannafjölda.
Þróunar- og stjórnunarsvið annast stefnumörkun, markaðs og upplýsingamál, viðskiptaþróun, lögfræðileg málefni og stjórnunarhætti, skipulag og þjóðréttarlegar skyldur sem Isavia hefur með höndum. Elín Árnadóttir hefur undanfarin ár gegnt starfi framkvæmdastjóra fjármálasviðs Isavia, Keflavíkurflugvallar ohf. og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. sem hún einnig veitt forstöðu um hríð.
Fjármálasvið annast reikningshaldi og hagdeild, fjárstýringu, fjármögnun, innkaup og kerfisþjónustu. Sveinbjörn Indriðason er nýráðinn til félagsins en hann hefur áður starfað sem forstöðumaður áhættustýringar hjá Icelandair, framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá FL Group og síðast sem rekstrar- og fjármálastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Clara.
Mannauðs-og árangurssvið annast starfsþróun, þjálfun og fræðslu, launavinnslu og kjarasamninga, innri skipulagsmál, innleiðingu stefnu og árangursmælingar. Sigurður Ólafsson hefur verið starfsmannastjóri Isavia frá stofnun og gegndi áður sama starfi hjá Keflavíkurflugvelli ohf.
Rekstrarsvið félagsins eru flugleiðsögusvið, flugvalla- og mannvirkjasvið, Keflavíkurflugvöllur og flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Sigurður Ólafsson.
Elín Árnadóttir.
Sveinbjörn Indriðason.