Breyting á eignarhaldi í Bláa Lóninu
Samningur hefur komist á um kaup Kólfs ehf., eignarhaldsfélags í meirihlutaeigu Gríms Sæmundsen, forstjóra Bláa Lónsins hf, á hlut Horns II í Hvatningu hf. en Hvatning heldur á um 40% hlut í Bláa Lóninu hf. Kólfur og Horn II hafa átt í góðu samstarfi um eignarhald í Bláa Lóninu í gegnum Hvatningu hf. frá árinu 2012.
Samhliða hefur núverandi hluthöfum Horns II verið veittur kaupréttur á sama viðskiptagengi til 31. janúar nk., á þeim hlutum sem undir voru í viðskiptunum. Tilurð viðskiptanna má rekja til þess að líftími Horns II mun renna sitt skeið á næsta ári, segir í tilkynningu.