Bragi Guðmundsson - Báruklöpp
Bragi Guðmundsson - Báruklöpp

Viðskipti

Brautargengi á Suðurnesjum
Þriðjudagur 26. ágúst 2008 kl. 15:52

Brautargengi á Suðurnesjum

- Námskeið fyrir konur um stofnun og rekstur fyrirtækja.


Impra nýsköpunarmiðstöð gengst nú í ellefta sinn fyrir svokölluðum Brautargengisnámskeiðum á landsbyggðinni. Haustið 2008 er áætlað að halda námskeiðið á þremur stöðum á landinu, þ.e. á Reyðarfirði, Akureyri og Suðurnesjum(Keilissvæði). Alls hafa yfir sjö hundrað konur víðs vegar um land lokið Brautargengisnámskeiði frá upphafi.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl

Brautargengi er 75 kennslustunda námskeið um stofnun og rekstur fyrirtækja. Meðal markmiða námskeiðsins eru að nemendur öðlist hagnýta þekkingu á þáttum er lúta að stofnun og rekstri fyrirtækja, markaðsmálum, fjármálum og stjórnun. Einnig öðlast nemendur tengsl við atvinnulífið í gegnum fyrirlesara, leiðbeinendur og aðra þátttakendur. Kennsla mun að þessu sinni fara fram á stöðunum þremur auk þess sem þátttakendur hitta aðra hópa tvisvar á námskeiðstímanum. Lögð verður áhersla á að kennarar hafi reynslu og þekkingu af atvinnulífinu og miðli hagnýtri þekkingu til nemenda. Þátttakendur fá einnig handleiðslu hjá starfsmönnum Impru og samstarfsaðila á milli kennslustunda.



Fyrir hverja er Brautargengi?

Brautargengi er sérsniðið námskeið fyrir athafnakonur sem hafa viðskiptahugmynd sem þær vilja hrinda í framkvæmd. Einu inntökuskilyrðin eru að þátttakendur hafi viðskiptahugmynd til að vinna með, séu að hefja rekstur eða séu nú þegar í rekstri.



Skipulag námskeiðsins

Námskeiðið hefst með sameiginlegu hópefli hópanna frá stöðunum þremur helgina 13.-14. september 2008. Eftir það verður kennt einu sinni í viku frá september og fram í desember og lýkur námskeiði með formlegri útskrift.



Reynsla annarra

Boðið hefur verið upp á Brautargengisnámskeið reglulega í Reykjavík síðan 1996 en á árinu 2003 var í fyrsta sinn boðið upp á námskeiðið á landsbyggðinni en aðkoma sveitarfélaga hafa gert það að verkum að unnt er að halda námskeiðin reglulega víða um land. Uppbygging námsins á landsbyggðinni er sú sama og á höfuðborgarsvæðinu. Yfir sjö hundrað konur hafa lokið Brautargengisnámi frá upphafi, þar af um 230 á landsbyggðinni. Kannanir sem gerðar hafa verið um árangur námskeiðanna sýna að um helmingur kvenna sem tekið hafa þátt í námskeiðinu frá upphafi nú með fyrirtæki í rekstri. Flest fyrirtækjanna eru með einn til tvo starfsmenn, en meðalfjöldi starfsmanna er níu. Eftirgrennslan hefur ennfremur leitt í ljós að einungis ein af hverjum 10 konum hefur alfarið lagt á hilluna öll áform um fyrirtækjarekstur. Þó ekki hafi allar hafið rekstur eru margar enn að vinna að undirbúningi sinna viðskiptahugmynda.



Frekari upplýsingar

Námskeiðið á Suðurnesjum, Akureyri og Reyðarfirði er í umsjón Selmu Dögg Sigurjónsdóttur, verkefnisstjóra hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Námskeiðsgjald er 40.000,- kr. á hvern nemenda, en algengt er að stéttarfélög hafi tekið þátt í greiðslu námskeiðskostnaðar. Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar má finna á vefsíðu Impru, www.impra.is, en einnig er hægt að hafa samband við verkefnisstjóra með tölvupósti ([email protected]) eða hringja í síma 460 7975.

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25