BMW hreiðrar um sig hjá Verne Global á Ásbrú
Þýski bílarisinn BMW hefur leigt pláss hjá Verne Global-gagnaverinu á Ásbrú í Reykjanesbæ. Ætlunin hjá fyrirtækinu er að nota tölvubúnaðinn í að keyra öfluga gagnareikna (ofurtölvur) sem verða notaðir af verkfræðingum fyrirtækisins við hönnun á nýjum bílum.
Í upphafi verða 10 tölvur í gagnaverinu en til stendur að þeim fjölgi innan skamms. Fyrirtækið segir aðstæður hér á landi vera ákjósanlegar þar sem gagnaverið sé umhverfisvænt og auk þess þurfi ekki mikla orku til að kæla tölvukerfi þeirra með sérstökum kælum, heldur sér íslenska veðráttan alfarið um það.