Bláa Lónið tilnefnt til Þekkingarverðlaunanna
Bláa Lónið er meðal þeirra þriggja fyrirtækja sem tilnefnt er til Íslensku þekkingarverðlaunanna sem verða afhent á morgun fyrir árið 2012. Yfirskrift verðlaunanna er: bættur árangur í breyttu umhverfi og við valið var haft til hliðsjónar hvernig framtíðarsýn, stefna og gildi fyrirtækisins endurspeglist í þeim árangri sem fyrirtækið hefur náð á undanförnum árum.
Það voru félagsmenn FVH og dómnefnd sem völdu fyrirtækin þrjú. Íslensku þekkingarverðlaunin verða afhent á morgun, 20. febrúar í Hörpu á Íslenska þekkingardeginum.
Auk þess verða veitt verðlaun til þess viðskiptafræðings eða hagfræðings sem þykir hafa skarað fram úr á liðnu ári. Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, mun afhenda verðlaunin en hann er verndari Íslenska þekkingardagsins.