Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

Bláa Lónið og Jóhann Ólafsson og Co í samstarf
Þriðjudagur 19. desember 2006 kl. 21:00

Bláa Lónið og Jóhann Ólafsson og Co í samstarf

Bláa Lónið hf og Jóhann Ólafsson og Co hafa gert með sér samning um tækjabúnað í eldhús nýs veitingastaðar Bláa Lónsins sem opna mun næsta vor. Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins hf og Sigurður H. Ingimarsson, forstjóri Jóhanns Ólafssonar og Co, undirrituðu samninginn af þessu tilefni í Bláa Lóninu föstudaginn 15. desember segir í fréttatilkynningu frá Bláa Lóninu.

Jafnframt gera Bláa Lónið og Jóhann Ólafsson og dótturfélög, GV heildverslun og Snæfiskur, með sér samning um þjónustu sem tekur til allra þátta í starfsemi félaganna, byggt á vöruframboði þeirra og þjónustu á sviði eftirmarkaðar. Hér er sennilega um tímamótasamning að ræða á íslenskum markaði þar sem tekið er tillit til í fyrsta skipti allra mögulegra þátta á veitingahliðinni.

„Veitingareksturinn er mikilvægur og vaxandi þáttur í starfsemi Bláa Lónsins”, segir Grímur. „Og því skiptir miklu máli að vera í samstarfi við trausta aðila á þessu sviði sem eru tilbúnir til að leita lausna með okkur sem henta fjölbreyttri veitingastarfsemi okkar.“

Við þetta tækifæri, sagði Sigurður að það væri ánægjulegt fyrir Jóhann Ólafsson og Co að geta veitt Bláa Lóninu heildarlausn og þjónustu vegna veitingastarfsemi fyrirtækisns. „Veitingaþjónusta Bláa Lónsins er fjölbreytt og það er mikil hvatning fyrir okkur að geta veitt svo öflugu fyrirtæki þjónustu á þessu sviði.”

Johann Ólafsson og Co veitir viðskiptavinum sínum heildarlausnir og ráðgjöf fyrir veitingaeldhús auk annarar vöru og þjónustu.

Bláa Lónið er heilsulind á heimsmælikvarða. Framkvæmdum við stækkun og endurhönnun lýkur næsta vor. Nýr veitingastaður sem verður einn glæsilegasti veitingastaður landsins verður tekinn í notkun á sama tíma, auk þess sem boðið verður upp á úrval léttra veitinga í bistró umhverfi.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024