Björn Ingi ráðinn til WOW air
Björn Ingi Knútsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri flugrekstarsviðs WOW air flugfélagsins, en hann sat í stjórn WOW air frá stofnun félagsins. Björn sem er Keflvíkingur er fæddur árið 1961. Hann lauk prófi frá Stýrimannaskólanum árið 1984, prófi í skipamiðlun frá London School of Foreign Trade árið 1985 og prófi í skipa- og hafnarekstrarfræði frá University of Wales í Cardiff árið 1987. Hann starfaði hjá Skipadeild Sambandsins og síðar Samskipum í ýmsum stjórnunarstöðum til ársins 1996 og var eftir það framkvæmdastjóri hjá Sofrana Unilines í Ástralíu og Nýja Sjálandi til 1998.
Björn Ingi var skipaður flugvallarstjóri á Keflavíkurflugvelli 1. janúar árið 1999 og gegndi því starfi til ársins 2008. Hann var fastafulltrúi Íslands hjá Alþjóðaflugmálastofnuninni (ICAO) í Montreal árið 2005. Hann gegndi stöðu forstjóra Saltkaupa hf. frá 2008-2009. Björn Ingi hefur starfað sjálfstætt að verkefnastjórnun á Austurlandi frá árinu 2010. Björn Ingi er kvæntur Jónu Kristínu Þorvaldsdóttur sóknarpresti á Fáskrúðsfirði.
Frétt frá Mbl.is