Björn Ingi í stjórn nýs flugfélags
Björn Ingi Knútsson fyrrverandi forstjóri Keflavíkurflugvallar og fulltrúi Norðurlanda í IATA - alþjóðasamtökum flugrekenda er meðal stjórnarmanna í nýju flugfélagi sem hefur flug frá Keflavík til Evrópuborga næsta vor.
Títan, fjárfestingarfélag sem er að fullu í eigu Skúla Mogensen fjárfestis, hefur um hríð skoðað kosti þess að hefja flugrekstur til og frá Íslandi. Sú vinna er nú á lokastigi. Verið er að klára samninga við stóran kanadískan flugrekenda um langtímaleigu á nokkrum Boeing-þotum sem mynda munu flugflota félagsins í upphafi. Félagið hyggst hefja flug til Evrópu í vor. Það mun hafa höfuðstöðvar sínar á Íslandi og vera að fullu í íslenskri eigu, segir í tilkynningu frá félaginu.
Frekari upplýsingar um nafn hins nýja flugfélags, til hvaða áfangastaða verður flogið og hvenær sala flugmiða hefst, verða veittar á næstunni. Félag utan um flugreksturinn hefur verið að fullu fjármagnað. Það verður í meirihlutaeigu Títan, en aðrir hluthafar eru Baldur Baldursson og Matthías Imsland. Baldur er framkvæmdastjóri félagsins sem unnið hefur að verkefninu og heitir Iceland jet ehf til bráðabirgða.
Stjórn félagsins skipa Skúli Mogensen eigandi Títan, Baldur Baldursson framkvæmdastjóri, Davíð Másson forstjóri Avian Aircraft Trading og Björn Ingi Knútsson fyrrv. forstjóri Keflavíkurflugvallar og fulltrúi Norðurlanda í IATA - alþjóðasamtökum flugrekenda. Skúli Mogensen er jafnframt stjórnarformaður hins nýja félags.