Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

Bílabúð Benna lækkar verð
Mánudagur 13. janúar 2014 kl. 10:14

Bílabúð Benna lækkar verð

Bílabúð Benna hefur ákveðið að lækka verð um allt að 7% á nýjum bílum vegna styrkingar krónunnar. Sem dæmi má nefna að Chevrolet Cruze station lækkar um 200 þús. kr., fer úr 3.190 þús. kr. í 2.990 þús. kr. og Chevrolet Captiva sportjeppinn lækkar um 500 þús. kr., fer úr 6.490 þús. kr. í 5.990 þús. kr. segir í fréttatilkynningu frá Bílabúð Benna.

„Við höfum alltaf kappkostað að láta viðskiptavini njóta hagstæðara gengis. Síðastliðið vor lækkuðum við verð verulega vegna styrkingar krónunnar og núna gerum við það sama. Um leið leggjum við okkar af mörkum til að stuðla að stöðugleika og tryggja kaupmáttinn,“ segir Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bílabúðar Benna en fyrirtækið er með bílasölu á Fitjum í Njarðvík.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Chevrolet Spark, ódýrasti nýi smábíllinn á markaðnum, lækkar um 54 þús. kr. og kostar frá 1.736 þús. kr. Þess má einnig geta að nú býðst viðskiptavinum Bílabúðar Benna bílalán án lántökugjalda og stimpilgjalda með allt að 75% fjármögnun í allt að 84 mánuði, í samstarfi við Lykil.

Sölumennirnir Svavar Grétarson og Mikael Þór Halldórsson í Bílabúð Benna á Fitjum í Njarðvík.