Besta ár SpKef frá upphafi

Áætlanir fyrir árið 2006 gera ráð fyrir áframhaldandi góðri afkomu.
Á heimasíðu SpKef segir Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri að afkoma ársins 2005 sé sú besta í sögu sjóðsins.
„Markaðsaðstæður hafa verið sparisjóðnum afar hagstæðar á síðastliðnu ári sem sést best í aukningu gengishagnaðar upp á 735 m. kr. á milli ára. Mikil aukning var á umsvifum Viðskiptastofunnar bæði í eignastýringu og miðlun verðbréfa. Þá var mikil aukning í útlánum og hreinar vaxtatekjur jukust um tæp 18,1% á milli ára. Vanskilahlutfall er nú í sögulegu lágmarki og var mikil vinna lögð í þann málaflokk á árinu 2005 og er stefnan að gera enn betur árið 2006. Starfsemi Sparisjóðsins hefur styrkst mikið og tekjustoðum fjölgað. Viðskiptavinum fjölgar óðum og Sparisjóðurinn kappkostar að bjóða upp á fjölbreytt og gott vöruúrval fyrir viðskiptavini sína. Sem dæmi um það þá var stofnað til samstarfs við VÍS þar sem vildarviðskiptavinir Sparisjóðsins fá sérkjör á iðgjöldum VÍS og vildarviðskiptavinir VÍS fá bætt kjör í Sparisjóðnum í Keflavík.“
Geirmundur segist vera bjartsýnn á framtíð Sparisjóðsins í Keflavík og býst við góðri afkomu árið 2006.
Helstu niðurstöður úr rekstri og efnahag
• Hagnaður Sparisjóðsins í Keflavík árið 2005 nam 1.392,6 m.kr. króna fyrir skatta samanborið við 508,9 m. kr. árið 2004.
• Hagnaður eftir skatta nam 1.150,2 m. kr. samanborið við 408,6 m. kr. árið 2004.
• Arðsemi eigin fjár var 42,9%.
• Vaxtatekjur Sparisjóðsins námu 2.526,9 m.kr. en það er 32,7% hækkun frá árinu 2004.
• Vaxtagjöld hækkuðu einnig, eða um 42% og námu 1.651,1 m.kr. árið 2005
• Hreinar vaxtatekjur námu því 875,8 m.kr. samanborið við 741,8 m.kr. árið 2004 sem er hækkun um 18,1%.
• Vaxtamunur, þ.e. hreinar vaxtatekjur í hlutfalli af meðalstöðu fjármagns var 3,0% árið 2005 en 3,3% árið 2004.
• Aðrar rekstrartekjur hækkuðu um 857,6 m. kr. og voru 1.770,9 m.kr. árið 2005. Munar þar mest um hækkun á gengishagnaði upp á 735,2 m.kr. og tekjur af hlutabréfum og öðrum eignarhlutum upp á 102 m. kr.
• Önnur rekstrargjöld námu alls 924,7 m.kr. og jukust um 11,5% frá árinu áður. Laun og launatengd gjöld jukust um 9,5%. Annar almennur rekstrarkostnaður jókst um 13,6%. Rekstrarkostnaður sem hlutfall af niðurstöðu efnahagsreiknings var 2,9% en var 3,2% árið 2004.
• Kostnaðarhlutfall árið 2005 var 35% á móti 50% árið 2004.
• Framlag í afskriftareikning útlána var 329,4 m.kr. en var 316,4 m.kr. árið 2004. Sem hlutfall af niðurstöðu efnahagsreiknings var framlagið 1,04% en var 1,2% árið 2004.
• Afskriftareikningur útlána nam í árslok 1,8% af útlánum en var 2,19% árið áður.
• Heildarinnlán í Sparisjóðnum ásamt lántöku námu í lok árins 2005 24.923,6 m.kr. og er aukningin 32,4% á milli ára.
• Útlán Sparisjóðsins ásamt markaðsskuldabréfum námu 25.617 m.kr. í lok ársins 2005 og höfðu aukist um 4.534,7 m.kr. eða um 21,5%.
• Í lok ársins var niðurstöðutala efnahagsreiknings 31.777,3 m.kr. og hafði hún hækkað um 5.466,4 m.kr. eða 20,8%. Eigið fé Sparisjóðsins í lok ársins 2005 nam 3.763,7 m.kr. og hefur eigið fé aukist um 1.081,6 m.kr. eða 40,3%. Eiginfjárhlutfall Sparisjóðsins samkvæmt CAD-reglum er 12,42% en var 12,56% á sama tíma árið áður.
• Meðalfjöldi starfsmanna árið 2005 var 75,7 sem er aukning um 1,3 stöðugildi frá því árinu áður
• Í lok árins 2005 var stofnfé 600 milljónir og voru stofnfjáraðilar 558 talsins.
Aðalfundur Sparisjóðsins í Keflavík verður haldinn föstudaginn 10. mars n.k. Stjórn sjóðsins leggur til að greiddur verði 12,5% arður á uppreiknað stofnfé. Auk þess sem nýttar verði heimildir laga um endurmat og viðbótarendurmat þannig að nafnávöxtun stofnfjár verði um 22%.
Af www.spkef.is