Bygg
Bygg

Viðskipti

Miðvikudagur 19. janúar 2000 kl. 18:48

BÆTT ÞJÓNUSTA HJÁ TÆKNIVALI

Í október á síðasta ári yfirtók Tæknival rekstur Tölvuvæðingar í Keflavík. Verslun Tölvuvæðingar var breytt í BT verslun við Hafnargötu 31 en þjónustusviðið verður áfram að Hafnargötu 35 (fyrir ofan skóbúðina). Verslunarreksturinn hefur gengið mjög vel það sem af er enda hefur vöruúrvalið stóraukist og það kunna Suðurnesjamenn vel að meta. Guðmundur Þórðarson deildarstjóri hjá Tæknivali sagði að þessi yfirtaka hefði fyrst og fremst verið gerð til að ná fram hagræðingu. „Rekstur Tölvuvæðingar gekk ekki sem skildi s.l. þrjú ár og því var nauðsynlegt að breyta rekstrarformi fyrirtækisins. Við bjóðum uppá sömu þjónustu við fyrirtæki og Tölvuvæðing gerði áður en Tæknival er þjónustufyrirtæki sem selur tölvur og vörur eingöngu til fyrirtækja. BT er aftur á móti stefnt á einstaklingsmarkaðinn. Fyrirtæki sem voru með viðskipti við Tölvuvæðingu fá sömu þjónustu og vörur hjá Tæknivali“, sagði Guðmundur. Verslunin BT-tölvur hefur sýnt mun meiri sölu en verslun Tölvuvæðingar gerði áður. „Það getur nærri að veltan hjá versluninni hafi þrefaldast síðan í október, sem er mjög gott. Vöruúrvalið er orðið mun fjölbreyttara en BT selur m.a. hljómflutningstæki, sjónvörp, heimilistæki, geisladiska o.fl. Nú þarf fólk ekki þvælast í bæinn eftir þessum hlutum því við seljum þá á sama verði hér á Suðurnesjum“, sagði Guðmundur.
Bílakjarninn
Bílakjarninn