Aukin gjaldeyrisþjónusta í SpKef

Sparisjóðurinn hefur nú einnig um nokkurt skeið boðið uppá Moneygram peningasendingar. Moneygram býður uppá einfaldar, öruggar og hraðvirkar peningasendingar um allan heim og hægt er að nálgast peningana á áfangastað eftir aðeins 10 mínútur!
Kristín Sigurðadóttir, sem sér um erlend viðskipti hjá SpKef, segir fjölda fólks hafa nýtt sér Moneygram peningasendingar Sparisjóðsins og mikil ánægja verið með þjónustuna. Einnig bendir Kristín á að þetta sé í fyrsta sinn hjá almennum viðskiptabanka sem boðið er uppá jafn fjölbreytt úrval gjaldmiðla og nú er gert hjá Sparisjóðnum.
Nánari upplýsingar um gjaldeyri og Moneygram má finna á vef Sparisjóðsins: www.spkef.is
Mynd: Kristín Sigurðardóttir, sem sér um erlend viðskipti hjá Sparisjóðnum, hvetur viðskiptavini til að sækja sér gjaldeyri í Sparisjóðinn áður en haldið er í fríið.