Aukið samstarf Keilis og Algalífs
Keilir - Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs og líftæknifyrirtækið Algalíf hafa undirritað samstarfssamning með það að markmiði að efla tengsl fyrirtækjanna á sviði rannsókna og þróunar. Með samningnum á að efla sameiginlegar rannsóknir og aukið samstarf með verkefnum nemenda í tæknifræðinámi, notkun á rannsóknaraðstöðu, þróunarverkefnum, kynningarstarfi og þátttöku í klasastarfi um þróun nýrra námsbrauta í líftækni.
Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, og Skarphéðinn Orri Björnsson, framkvæmdastjóri Algalífs, undirrituðu samninginn í rannsóknaraðstöðu tæknifræðináms Háskóla Íslands og Keilis, á Ásbrú í Reykjanesbæ. Þeir vænta mikils af samningnum enda fer líftæknimarkaðurinn ört stækkandi með þar til fallandi þörfum fyrir sérhæfðri aðstöðu til efnafræðirannsókna og sérþjálfaðs starfsfólks.
Algalíf starfrækir örþörungaverksmiðju á Ásbrú og er stefnt á að framleiðslan nái fullum afköstum á næsta ári og verða starfsmenn þá um 30 talsins. Keilir hefur síðan árið 2010 boðið upp á háskólanám í tæknifræði á vegum Háskóla Íslands þar sem mikil áhersla er lögð á náið samstarf við fyrirtæki og atvinnulíf, meðal annars með nemendaverkefnum. Boðið er upp á nám á tveimur línum, mekatróník hátæknifræði og orku- og umhverfistæknifræði, en fyrirhugað samstarf við Algalíf mun sér í lagi nýtast nemendum á þeirri námslínu.