Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

Auglýsir eftir styrkumsóknum
Miðvikudagur 14. september 2011 kl. 16:24

Auglýsir eftir styrkumsóknum

Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum auglýsir eftir styrkumsóknum til Vaxtarsamnings Suðurnesja á grundvelli samnings milli iðnaðarráðuneytis og atvinnunþróunarráðs .

Styrkhæf verkefni eru þróunar- og nýsköpunnar sem markvisst stefna að markaðsetningu nýrrar eða endurbættar vöru eða þjónustu. Skilyrði úthlutunar er að viðkomandi verkefni feli í sér samstarf þriggja eða fleiri fyrirtækja og falli að markmiði samnings sem og verklagsreglum um úthlutun. Styrkir geta verið allt að 50% af styrkhæfum kostnaði einstakra verkefna, gegn mótframlagi þátttakenda. Skilgreining á styrkhæfum kostnaði, umsóknareyðublöð og aðrar upplýsingar er að finna á vefsíðu http://vaxtarsamningur.sss.is/. Umsóknarfrestur er til 10. október.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024