Átta framúrskarandi
Átta fyrirtæki á Suðurnesjum a.m.k. eru á meða 177 fyrirtækja á Íslandi sem uppfylla skilyrði Creditinfo sem staðfestir að fyrirtækin flokkist sem framúrskarandi fyrirtæki. Þessi fyrirtæki eru K&G ehf. í Sandgerði, Besa ehf. í Grindavík, SI Raflagnir ehf. í Garði, Fiskverkun Ásbergs ehf. Sandgerði, Verkfræðistofa Suðurnesja ehf., Fram Foods Ísland hf., Íslenska félagið ehf. Keflavík og Landslög lögfræðiþjónusta ehf.
Creditinfo hefur unnið að ítarlegri greiningu sem sýnir hvaða íslensku fyrirtæki fá bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati félagsins. Af rúmlega 32.000 fyrirtækjum sem skráð eru í Hlutafélagaskrá reyndust 177 fyrirtæki uppfylla þau skilyrði sem Creditinfo setur til að fá viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki.
Við valið voru síðustu þrír ársreikningar fyrirtækja lagðir til grundvallar og þurftu þau meðal annars að sýna fram á jákvæðan rekstrarhagnað og ársniðurstöðu. Sömuleiðis máttu eignir aldrei vera undir 100 milljónum og eiginfjárhlutfall aldrei minna en 20%. Einnig þurftu fyrirtækin að vera í flokki 1-3 í CIP áhættumati Creditinfo.