Atlantsolía opnar senn
Sífellt styttist í að Atlantsolía opni sína fyrstu bensínafgreiðslustöð á Suðurnesjum við Hólagötu í Reykjanesbæ. Búið er að koma dælum fyrir og malbika planið, en Hugi Hreiðarsson, markaðs- og kyningarstjóri Atlantsolíu, segir þó ekki enn hægt að festa einhverja dagsetningu.
Hugi sagðist í samtali við Víkurfréttir vona að bæjarbúar taki vel á móti fyrirtækinu, „Við munum gera okkar besta til að halda uppi samkeppni á markaðinum á Suðurnesjum. Við höfum þegar fengið mikil og góð viðbrögð og búumst við góðum móttökum.”