Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Viðskipti

Ásbrú fær nýtt póstnúmer
Föstudagur 24. nóvember 2017 kl. 15:12

Ásbrú fær nýtt póstnúmer

- dreifbýli á Suðurnesjum fær sérstök póstnúmer og Keflavíkurflugvöllur 235

Póst­ur­inn mun gera nokkr­ar breyt­ing­ar á póst­núm­er­um lands­ins frá og með næstu mánaðamót­um. Sér­stakt póst­núm­er verður tekið upp á svæðum í dreif­býli sem áður féllu und­ir sama póst­núm­er og næsti þétt­býliskjarni. Hægt verður að þekkja flest nýju póst­núm­er­in á því að síðasta tal­an í þeim hækk­ar um einn, að því er kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Póst­in­um.
 
Póstur í dreifbýli í Vogum fer á póstnúmerið 191, 241 fyrir dreifbýli í Grindavík,246 fyrir dreifbýli í Sandgerði, 251 fyrir dreifbýli í Garði.
 
Ásbrú, sem er á gamla varn­ar­svæðinu, fær nú sitt eigið póst­núm­er sem verður 262 Reykja­nes­bær en þar var póstnúmerið áður 235.
 
Þá verður Kefla­vík­ur­flug­völl­ur héðan í frá með sína eig­in árit­un, eða 235 Kefla­vík­ur­flug­völl­ur. 
 
Brynjar Smári Rúnarsson, forstöðumaður markaðsdeildar Póstsins: 
 
„Nýju póstnúmerin ættu ekki að hafa nein bein áhrif á fólk eða starfsemi fyrirtækja og stofnana. Hugsunin með þessum breytingum er að láta póstnúmerin afmarka betur þéttbýli frá dreifbýli og einfalda þannig alla flokkun og dreifingu pósts. Allt hjálpar þetta okkur að koma pósti hratt og vel til skila“. 
 
Pósturinn vekur athygli á að hægt er að koma athugasemdum og spurningum varðandi nýju póstnúmerin á framfæri í gegnum netfangið [email protected].

Hér má svo skoða nýtt póstnúmerakort.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024