Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Viðskipti

Fimmtudagur 17. janúar 2002 kl. 09:01

Ársól í Garðinum tekur stakkaskiptum

Sú breyting hefur verið gerð á versluninni Ársól í Garðinum að öll matvara, sælgæti og pizzur hafa verið taknar út úr rekstrinum. Verslunin opnar aftur á föstudaginn eftir gagngerar breytingar og verður opnuð sem gjafavöruverslun með blóm, gjafavöru, sokkabuxur, garn, skólavövur og leikföng. Ingibjörg Sólmundardóttir og Loftur Sigvaldason, sem hafa rekið Ársól um áratugaskeið ætla einnig að opna handverkstæði sem þau ætla að kalla Gallery-Sól í Ársól. Það er opið öllum þeim sem vilja vinna skapandi úr leir, gleri og tré. Leiðbeinendur verða á verkstæðinu að minnsta kosti einn dag í viku, annars er handverkstæðið opið fólki alla daga. Opnunartíminn hefur líka breyst í Ársól, nú er opið alla virka daga fra klukkan 13.00 til 18.00 og frá klukkan 13.00 til 16.00 á laugardögum og sunnudögum, það auðveldar fólki að kaupa afmælispakka um helgar. Handverkstæðið verður opið alla daga þegar búðin er opin og einnig fram á kvöld á virkum dögum. Á morgun er opið hús í Ársól frá klukkan 13.00 og eru allir velkomnir í kaffi og kleinur
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024