Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

Almenn ánægja með Skólamat í Miðhúsum
Laugardagur 17. ágúst 2013 kl. 10:12

Almenn ánægja með Skólamat í Miðhúsum

samningur hefur verið gerður milli Sandgerðisbæjar og Skólamatar efh.

Í vikunni var undirritaður samningur  milli Sandgerðisbæjar og Skólamatar ehf.  um rekstur mötuneytis fyrir nemendur og starfsfólk Grunnskólans í Sandgerði og fyrir aldraða í félagsmiðstöðinni Miðhúsum. Skólamatur tekur við rekstri mötuneytis skólans síðar í ágúst en hefur frá því í júlí annast hádegismat í Miðhúsum. Að sögn Anne Lise Jensen forstöðukonu Miðhúsa er almenn ánægja með matinn meðal þeirra sem snæða hádegismat þar. 

Við undirritun samningsins lýsti  Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri yfir ánægju með samninginn og kvaðst fullviss um að Skólamatur  myndi standa undir þeim væntingum sem gerðar eru til þjónustu, gæða og fjölbreytni máltíða. „Við hlökkum mjög til samstarfs við Sandgerðinga“, sagði Axel Jónsson stjórnarformaður Skólamatar og bætti við að mikil tilhlökkun væri innan fyrirtækisins að takast á við þetta verkefni hér í Sandgerði. 
Í samningnum er kveðið á um að matseðlar skuli uppfylla kröfur landlæknisembættisins um samsetningu skólamáltíða og samsetningu máltíða fyrir aldraða. Matseðlar Skólamatar eru samdir af fjöbreyttum hópi fólks og næringarfræðingur yfirfer matseðlana með tilliti til næringar og hollustu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Skólamatur er fjölskyldufyrirtæki  sem stofnað var fyrir meira en áratug af Sandgerðingnum Axel Jónssyni veitingamanni. Skólamatur þjónar nú um 30  grunnskólum á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu auk þess sem þeir þjónusta önnur mötuneyti fyrir sveitarfélög og stofnanir.
Undanfarin ár hefur Söluvitinn ehf. séð um mat fyrir grunnskólann og Miðhús. Stefáni Sigurðarsyni matreiðslumanni og starfsfólki Söluvitans eru færðar þakkir fyrir samstarfið.

Á myndinni við undirritun samningsins eru f.h. Fanney D. Halldórsdóttir, skólastjóri grunnskóla Sandgerðis, Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri Sandgerðisbæjar, Axel Jónsson stjórnarformaður Skólamatar, Fanný Axelsdóttir starfsmannastjóri Skólamatar, Anne Lise Jensen forstöðukona Miðhúsa ásamt syni hennar Kristófer Emil Kárasyni og Jón Axelsson framkvæmdastjóri Skólamatar.