Afsláttarkort í gokart

Fyrir þá sem eyða miklum tíma á akstur er Platínukortið hagstæðast en það veitir handhafa rétt til að aka í allt að 60 mínútur á dag til áramóta 2002 fyrir 100.000 kr. en það jafngildir 8 heimsóknum. Þá er boðið upp á Gullkort en þar fær handhafi 30 mínútur á dag og jafngildir það 10 heimsóknum á brautina og kostar kortið kr. 60.000. Sala á öllum kortunum er nú þegar hafin en sé kortið keypt á þessu ári og 10 ferðir farnar fyrir áramót þá þýðir það að viðkomandi ekur frítt allt næsta ár.
Fyrir þá sem ekki hafa jafnmikinn tíma bjóða Reis-bílar upp á Silfurkort sem veitir handhafa rétt til þess að keyra 15 mínútur á hverjum degi á kr. 40.000 og jafngildir það 13 heimsóknum á venjulegu verði. Að lokum er boðið upp á kort fyrir áhugamenn um íþróttina en það veitir handahafa og fjölskyldu hans 25% afslátt á keyptum akstri en það kort komstar kr. 20.000. Þeir sem kaupa Platínu- eða gullkort gefst auk þess kostur á 2 tíma námskeiði og akstri keppniskarta þar sem námskeiðsgögn og akstur er innifalinn. Að sögn Stefáns Guðmundssonar, eiganda Reis-bíla hefur mikil eftirspurn verið eftir kortum af þessu tagi og er með útgáfu kortanna verið að koma til móts við óska viðskiptavina. Þeir sem hafa áhuga á að eignast eitthvað af ofangreindum kortum er bent á að hafa hraðar hendur þar sem kortin eru einungis til í takmörkuðu magni. Nánari upplýsingar um kortin er að finna á heimasíðu Reis-bíla www.gokart.is eða hjá Stefáni í síma 893-1992.