Aðalfundur Samtaka stofnfjáreigenda Spkef
Aðalfundur Samtaka stofnfjáreigenda í Sparisjóðnum í Keflavík verður miðvikudaginn 30. maí kl. 18:00 í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Áhugi er á því að vera með fjarfundarbúnað á fundinum svo sem flestir stofnfjáreigendur geti fylgst með. Háskólasetur Vestfjarða kemur til með að aðstoða okkur ásamt fleirum.
Það virðist hafa myndast áhugi meðal fólks, á því að skoða málsókn á hendur yfirmönnum, stjórn og endurskoðendum Sparisjóðsins í Keflavík.
Sigríður Rut Júlíusdóttir lögmaður samtakanna ætlar að mæta á fundinn og kynna fyrir okkur hvernig staðið yrði að þessum málaferlum.
Reikningar félagsins verða kynntir og ýmis önnur hagsmunamál rædd.
Kveðja, stjórnin.