60% vöru lækkar í verði hjá Nettó
Vörur hafa lækkað í verði milli ára í 60% tilvika hjá Nettó. Þetta er meðal þess sem komið hefur út úr verðlagseftirliti ASÍ. Þar á bæ hefur vöruverð verið kannað Bónus, Krónunni, Nettó, Iceland, Fjarðarkaupum, Samkaupum Úrval, Víði og Hagkaupum með árs millibili. Tvær þessara verslana eru starfræktar á Suðurnesjum, þ.e. Nettó og Bónus. Verðlag í Bónus hefur hins vegar verið að hækka samkvæmt þessari könnun.
Stærstur hluti af þeirri matvöru sem verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á þann 24. ágúst sl. hefur hækkað í verði frá sambærilegri könnun sem gerð var í byrjun september 2014. Verð í verslunum Bónus, Krónunni, Iceland, Fjarðarkaupum, Samkaupum-Úrval og Hagkaupum hefur hækkað. Í verslunum Víðis og Nettó hefur verð frekar verið að lækkað en hækka, en í báðum verslunum er um verðlækkun að ræða í 60% tilvika, segir í tilkynningu frá verðlagseftirliti ASÍ.
Verðhækkanir í flestum vöruflokkum
Áberandi er að vöruflokkurinn ostur, viðbit og mjólkurvörur er að hækka í öllum verslunum þrátt fyrir einstöku verðlækkanir. Sem dæmi um vörur sem hafa hækkað í verði má nefna að stoðmjólk frá MS hefur hækkað um 4-10%, undarrenna um 2-9%, Stóri Dímon um 1-9% og smjörvi um 1-25%. Af öðrum vörum sem hækka í verði má nefna „spelt flatkökur“ frá Ömmubakstri sem hafa hækkað um 7-19%. Kindabjúgu frá Búrfelli hafa hækkað í verði um 3-18%. Þurrvaran Tilda basmalti grjón 4*125 gr. hefur hækkað um allt að 16% og BKI kaffi classic hækkað um allt að 12%.
Sjáanlegar verðlækkanir
Eins og fram hefur komið voru vörugjöld feld niður um áramótin og var sykurskattur hluti af þeim. Afnám hans má sjá í lækkun um 60-65% á ódýrasta kílóinu af sykri. Aðrar vörur sem innihalda mikinn sykur eða sætuefni hafa einnig lækkað í verði eins og gosdrykkir, m.a. hefur 2 l. af Mix lækkað um allt að 10%.
Um áramótin var hækkun á virðisaukaskatti úr 7 í 11%, sem gaf tilefni til 3,7% hækkunar á mat- og drykkjarvörum. Samanburðurinn sýnir í mörgum tilvikum hækkun umfram það.
Þær verðbreytingar sem hér eru birtar miða við breytingar á verði verslana milli verðkannana verðlagseftirlits ASÍ þann 1.9.14. og 24.8.15. Rétt er að árétta að mæld eru þau verð sem eru í gildi á hverjum tíma í versluninni og geta tilboðsverð haft áhrif á verðbreytingar einstakra vara, segir jafnframt í tilkynningunni.