54 þúsund tonn fyrstu sex mánuði ársins
Fyrstu sex mánuði ársins 2010 voru seld 54.021 tonn fyrir rúma 14.9 milljarða króna í gegnum Reiknistofu fiskmarkaðanna í Reykjanesbæ. Á sama tíma árið 2009 seldust 60.187 tonn fyrir rúma 10.9 milljarða króna.
Aflaverðmæti fiskiskipa á Suðurnesjum jókst milli ára um 23,5% fyrstu fjóra mánuði ársins. Heildarverðmæti afla á Suðurnesjum nam rúmum 8,3 milljörðum króna í janúar – apríl á þessu ári samanborið við rúma 6,7 milljarða á sama tímabili síðasta árs.