4X4 jeppi ársins á sýningu hjá Bílabúð Benna
SsangYong Rexton verður á sýningu hjá Bílabúð Benna, Njarðarbraut 9 í Reykjanesbæ nk. laugardag. Rexton vakti mikla athygli þegar hann var frumsýndur um síðustu helgi og nú fá Suðurnesjamenn að skoða þennan nafntogaða lúxusjeppa. Hann hlaut titilinn 4X4 jeppi ársins samkvæmt árlegri úttekt 4X4 Magazine, sem er eitt þekktasta fagritið um jeppa.
Samkeppnin var hörð, en niðurstaða dómnefndar var afgerandi; SsangYong Rexton hlaut hæstu einkunn, bæði sem besti jeppinn og bestu kaupin og þar með titilinn „Best 4X4 of the year“. Gestur Benediktsson, sölustjóri Bílabúðar Benna, segir að Rexton sé einn fárra jeppa í dag sem byggður sé á grind, með læstum millikassa og lágu drifi. „Þar með er sannarlega ekki allt upp talið því að Rexton er hlaðinn tæknibúnaði og þægindum sem láta mun dýrari jeppa blikna í samanburði,“ segir Gestur.
„Fólk er sammála gagnrýnendum um að Rexton sé stórglæsilegur, jafnt utan sem innan. Stærðin kemur líka flestum á óvart, enda fer vel um 7 manns. Þá vekur athygli að dráttargetan er heil 3 tonn og svo á verðið örugglega eftir að gleðja marga,“ segir Gestur.
„Við hlökkum til að sýna Suðurnesjamönnum þennan verðlaunajeppa, ásamt öðrum fjórhjóladrifnum jeppum úr SsangYong fjölskyldunni á Njarðarbraut 9, í Reykjanesbæ,“ segir í tilkynningu frá Bílabúð Benna.
Sýningin er laugardaginn 19. janúar kl. 10:00 – 16:00. Allir eru hjartanlega velkomnir.
-
-
Íbúar Reykjanesbæjar mun ánægðari með sorphirðu nú
Fréttir 19.02.2019 -
Rýnt í nýtingu Reykjaneshallar og gerð nýs gervigrasvallar
Fréttir 19.02.2019 -
Samdráttur upp á 10% í sumaráætlun Keflavíkurflugvallar
Viðskipti 19.02.2019 -
Undirbúa fjölmargar framkvæmdir ársins
Fréttir 19.02.2019 -
Samþykkt með tilvitnuðum fyrirvara bæjarstjórnar
Fréttir 18.02.2019 -
Sex Suðurnesjamenn í æfingahópnum
Íþróttir 18.02.2019 -
Lifandi og krefjandi starf sem gefur mikið
Mannlíf 17.02.2019 -
Íbúafundur um ferðamál í Vogum
Mannlíf 19.02.2019 -
Grindavík hefur margt að bjóða
Mannlíf 17.02.2019 -
Fyrsti kossinn, Bláu augun þín og Harðsnúna Hanna
Mannlíf 16.02.2019 -
Þekking á aðstæðum flóttafólks og hælisleitenda dýpkuð
Fréttir 18.02.2019 -
Reyndi að borða flugmiðann sinn
Fréttir 16.02.2019
-
-
-
Nýtt framhaldsskólanám í tölvuleikjagerð á Ásbrú
VefTV 16.02.2019 -
VefTV 16.02.2019
-
Heilsugæsla dýranna og tölvuleikjanám í Suðurnesjamagasíni vikunnar
VefTV 14.02.2019 -
VefTV 09.02.2019
-
Hæfileikaríkur hópur setur upp Furðuverk
VefTV 09.02.2019 -
Furðuverk og auðlindagarður í Suðurnesjamagasíni
VefTV 07.02.2019 -
Nýtt lúxushótel og spa í Bláa Lóninu - sjón er sögu ríkari
VefTV 04.02.2019 -
The Retreat at Blue Lagoon og HS Orka í Suðurnesjamagasíni
VefTV 31.01.2019 -
Aðgerðir fyrir vaxtarsvæðið Suðurnes
VefTV 31.01.2019 -
Suðurnesjamaður ársins í Suðurnesjamagasíni
VefTV 25.01.2019 -
70-80% bæjarbúa á móti rekstri kísilvera í Helguvík
VefTV 23.01.2019 -
VefTV 20.01.2019
-