Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

440 milljón króna hagnaður hjá HS Veitum
Miðvikudagur 27. febrúar 2013 kl. 13:23

440 milljón króna hagnaður hjá HS Veitum

Heildarhagnaður HS Veitna fyrir árið 2012, samkvæmt ársreikningi, nam 442 milljónum kr. Í ársreikningi kemur fram að fjárhagsstaða HS Veitna er er sterk og horfur góðar. Eiginfjárhlutfall í árslok 2012 var 52,1%. Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) árið 2012 var 1.570 m.kr. (33,4%).

Sem kunnugt er keypti Reykjanesbær meirihluta í HS veitum við uppskipti Hitaveitu Suðurnesja í HS Orku og HS Veitur. Reykjanesbær á nú tæplega 67% eignarhlut í HS Veitum hf. en Orkuveitan og Hafnarfjörður eiga um 16% hvor.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Tekjur hækkuðu um 6% á milli ára. Samkvæmt rekstrarreikningi námu rekstrartekjur HS Veitna hf á árinu 4.699 m.kr. þar af vegna raforkudreifingar 2.348 m.kr., vegna sölu og dreifingar á heitu vatni 1.522 m.kr., vegna sölu og dreifingar á fersku vatni 501 m.kr. og vegna annarrar starfsemi 328 m.kr. Sambærilegar tölur fyrir árið 2011 eru eftirfarandi: rekstrartekjur 4.431 m.kr. þar af vegna raforkudreifingar 2.259 m.kr., vegna sölu og dreifingar á heitu vatni 1.433 m.kr., vegna sölu og dreifingar á fersku vatni 435 m.kr. og vegna annarrar starfsemi 304 m.kr.

Samkvæmt efnahagsreikningi eru eignir HS Veitna hf þann 31. desember 2012 bókfærðar á 17.127 m.kr. Skuldir HS Veitna hf nema 8.195 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi, þar af eru skammtímaskuldir 456 m.kr.