Sunnudagur 16. júní 2002 kl. 01:51
421 0000 er nýtt símanúmer Víkurfrétta

Víkurfréttir ehf. hafa tekið í notkun nýtt símanúmer. Númerið er
421 0000. Samhliða nýju símanúmeri hefur fyrirtækið tekið í notkun nýtt símkerfi, svokallað Centrex-kerfi frá Símanum. Nýja símkerfið mun auðvelda viðskiptavinum enn frekar að ná til starfsmanna Víkurfrétta, þar sem kerfið flytur símtöl yfir í GSM síma starfsmanna séu þeir ekki á skrifstofunni.Viðskiptavinum verður einnig boðið upp á beint innval til afgreiðslu, auglýsingadeildar, fréttadeildar, hönnunardeildar og þjónustudeildar Norðurljósa en Víkurfréttir eru með myndlyklaþjónustu fyrir Stöð 2, Sýn og aðrar sjónvarpsstöðvar Norðurljósa á Suðurnesjum.
Nýja símkerfið verður nánar kynnt í Víkurfréttum á fimmtudaginn ásamt beinum númerum til deilda innan fyrirtækisins.
Gamla númerið 421 4717 verður áfram virkt sem símanúmer hjá Víkurfréttum.
Símanúmer fyrir fréttaskot til Víkurfrétta allan sólarhringinn er 421 0002.