15.000 færri um Keflavíkurflugvöll
Í nýliðnum septembermánuði fóru rúmlega 172 þúsund farþegar um Keflavíkurflugvöll, samkvæmt tölum frá flugvellinum, samanborið við rúmlega 187 þúsund í september í fyrra. Fækkunin nemur rúmum 15.000 farþegum eða 3,87%.
Hlutfallslega meiri fækkun er meðal áfram- og skiptifarþega en þeirra sem eru á leið til og frá landinu. Frá áramótun nemur fækkun á heildarfarþegafjölda 3,87% en lítill samdráttur er þó hjá komu- og brottfararfarþegum, eða rúmt 1%, segir á vef Ferðamálastofu.